Categorias Ver Todas >

Audiolivros Ver Todos >

E-books Ver Todos >

„Grímuræningjarnir' voru svellkaldir

„Grímuræningjarnir' voru svellkaldir

Sinopse

Í eftirlitsmyndavélinni sáu rannsóknarlögreglumennirnir mennina þrjá koma út úr húsinu. „Sá langi' settist undir stýri, „sá feiti' í farþegasætið við hlið hans og „sá ungi' í aftursætið. Bíllinn var settur í gang og síðan óku þeir út á eina veginn sem þarna var, í átt að hlöðunni og lögreglumönnunum. Þegar bíllinn var kominn milli hlöðunnar og íbúðarhússins var látið til skarar skríða. Strákarnir í lögreglubílnum voru tilbúnir, rannsóknarlögreglumennirnir voru tilbúnir. Margra daga bið var fljótlega lokið.En byrjum á byrjuninni.Í bókunum „Norræn sakamál' segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.