Categorias Ver Todas >

Audiolivros Ver Todos >

E-books Ver Todos >

Svaðilför á sæþotu

Svaðilför á sæþotu

Sinopse

Það var blíðskaparveður að morgni fimmtudagsins 16. ágúst 2001. Farþegaferjan Norræna sigldi lygnan sjó inn mynni Seyðisfjarðar en ferjan hafði lagt af stað frá Bergen í Noregi tveimur dögum fyrr. Lítillega bætti í vindinn svo að litlar bárur dönsuðu á haffletinum. Þær voru þó það smáar að þær höfðu engin áhrif á siglingu ferjunnar þar sem hún nálgaðist áfangastaðinn í botni fjarðarins. Þær höfðu aftur á móti áhrif á sjóhæfni þess farartækis sem kemur við sögu í þessari frásögn.Ferjan var aðeins á eftir áætlun og það átti eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir þá sem höfðu gert ráð fyrir að geta smyglað um 2,3 kg af hassi inn í landið án þess að nokkur yrði þess var.