Categorias Ver Todas >

Audiolivros Ver Todos >

E-books Ver Todos >

Umfangsmikill vændishúsarekstur 

Umfangsmikill vændishúsarekstur 

Sinopse

Athugasemd, sem var varpað fram á einum af reglubundnum fundum toll- og skattyfirvalda með efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Álaborg, hafði í för með sér að vorið 2000 hófst rannsókn á hugsanlegum vændishúsarekstri konu að nafni Mette (breytt nafn). Mette var gift og átti þrjú börn, þar af tvö smábörn. Fjölskyldan bjó í einbýlishúsi í nágrenni Álaborgar og líf hennar virtist vera eins og annarra fjölskyldna. Rannsóknin leiddi til þess að um einu og hálfu ári síðar var Mette ákærð fyrir rétti í Álaborg fyrir brot á 228. grein í dönsku hegningarlögunum sem varðar vændishúsarekstur. Hún var ákærð fyrir að hafa rekið vændishús í Frederikshavn, Viborg, Randers, Álaborg og Viby um átta ára skeið frá 1992 og haft að yfirvarpi að um nuddstofur væri að ræða. Þá var hún ákærð fyrir að hafa haft rúmlega 8 milljónir danskra króna í tekjur af þessum rekstri á tímabilinu og ekki gefið þær tekjur upp til skatts.